Varaafl fyrir fjós og mjaltakerfi
Rekstraröryggi fyrir búið með BLUETTI EP2000
Í nútímafjósum skiptir stöðug raforka gríðarlega miklu máli. Þegar mjaltakerfi, kælikerfi, tölvubúnaður, fæðusniglar, loftpressur og annar lykilbúnaður í mjólkurframleiðslu treystir á rafmagn getur jafnvel stutt rafmagnsleysi valdið miklu raski á daglegum rekstri.
Flestir bændur þekkja að dælur og viðkvæm kerfi skemmast þegar rafmagnstruflanir verða á landskerfinu.
Fyrir bændur snýst varaafl því ekki aðeins um þægindi, heldur um öryggi, velferð búfjár, verndun framleiðslu og minni rekstraráhættu.
BLUETTI varaaflskerfi tryggja rekstraröryggi fjósa í rafmagnsleysi og í rafmagnstruflunum.

40kW BLUETTI EP2000 kerfi í Húnaþingi - Gert er ráð fyrir að kerfið sjái fjósi fyrir rafmagni í allt að 24 tíma.
BLUETTI EP2000 varaaflskerfið frá Orkulandi, er öflug lausn fyrir fjós og búrekstur þar sem mikilvægt er að halda rekstri gangandi þegar truflanir verða á raforkudreifingu. Kerfið er hugsað til að styðja við nauðsynlegan búnað og tryggja að viðkvæmir rekstrarþættir detti ekki út þegar rafmagn fer af eða spennugæði verða óstöðug.
Við erum þegar á 16 stöðum á landinu
BLUETTI EP2000 er þegar á 16 stöðum á landinu og þar af á nokkrum bæjum um landið. Fyrsta kerfið okkar var sett upp á Grund í Eyjafirði 2024 og hefur kerfið reynst frábærlega í fjölda tilfella þegar rafmagn hefur farið af, eða þegar rafmagnstruflanir hafa orðið.
Kerfið sem Halldór Örn, bóndi á Grund ákvað að myndi henta sér fullkomlega er 2 x BLUETTI EP2000 auk 8 x B700 rafhlaða. Kerfið er þriggja fasa, samtals 40Kw og56kWstundir. Samtals notkun allra tækja í fjósinu á Grund eru um 9kW. Halldór er því öruggur um að hafa nægt rafmagn fyrir sína starfsemi, m.v. 0,4 í samtímanotkunn í ca. 18 til 22 klukkutíma.

Halldór Örn, Bóndi á Grund í Eyjafirði. Hann fylgist með Bluetti varaaflskerfinu og stjórnar því með símanum.
Af hverju skiptir varaafl svona miklu máli í fjósi?
Í fjósi eru margir þættir samtengdir. Ef rafmagn hverfur getur það haft áhrif á:
- mjaltaþjóna og mjaltakerfi
- mjólkurkæla og kælibúnað
- tölvur, stjórnbúnað og netkerfi
- fæðusnigla og fóðurkerfi
- loftpressur og annan hjálparbúnað
- lýsingu, skynjara og eftirlitsbúnað
- …og ekki síst á skepnurnar sjálfar!
Þegar einn hlekkur stöðvast getur það haft áhrif á allt ferlið. Mjaltakerfi frá framleiðendum á borð við Lely, DeLaval og öðrum sambærilegum aðilum, byggja á áreiðanlegri raforku og stöðugum rekstri. Oft er þessi búnaður viðkvæmur fyrir rafmagnstruflunum. Þess vegna er mikilvægt að hafa varaaflslausn sem getur brugðist hratt við og stutt við þann búnað sem mestu máli skiptir hverju sinni. BLUETTI EP2000 er þessi búnaður og er þegar tengdur við þessa mjaltaþjóna.
Rekstraröryggi sem skiptir máli
Gott varaaflskerfi hjálpar til við að:
Minnka líkur á rekstrarstoppi
Þegar rafmagn fer af skapast strax hætta á truflun í mjöltum, kælingu og fóðrun. Varaafl getur brúað bilið og haldið lykilkerfum gangandi í skemmri eða lengri tíma.
Vernda verðmæta framleiðslu
Mjólk, kælikeðja og viðkvæmur búnaður þola illa langvarandi truflanir. Með varaafli er hægt að draga úr hættu á tjóni og óþarfa tapi.
Auka öryggi og yfirsýn
Þegar tölvukerfi, stýringar og eftirlitsbúnaður haldast virkur er auðveldara að bregðast rétt við aðstæðum.
Stuðla að betri búfjárvelferð
Í búrekstri skiptir reglufesta máli. Truflun á mjöltum, fóðrun eða loftræstingu getur haft áhrif á dýrin og daglegt jafnvægi í rekstrinum.
BLUETTI EP2000 fyrir íslenskan landbúnað
Á Íslandi geta veður, dreifikerfi og staðbundnar aðstæður skapað sérstakar áskoranir. Sum býli búa við viðkvæmari raforkuaðstæður en önnur, og víða getur spennufall, rafmagnstruflun eða tímabundið rafmagnsleysi haft meiri áhrif en menn gera sér grein fyrir.
Þar kemur BLUETTI EP2000 sterklega inn sem nútímaleg varaaflslausn sem getur verið hluti af markvissri vernd fyrir búrekstur.
Bluetti lausnin hentar vel þar sem bændur vilja:
- tryggja áframhaldandi rekstur lykilkerfa
- draga úr áhættu við rafmagnstruflanir
- fá meiri stjórn á orkuöryggi búsins
- byggja upp öruggari og faglegri innviði til framtíðar
Hver lausn er rétt fyrir þitt fjós?
Engin tvö fjós eru eins. Orkuþörf fer eftir stærð bús, fjölda tækja, ræsingarálagi, forgangsröðun búnaðar og því hversu lengi þarf að geta haldið rekstri gangandi ef straumur fer af. Þess vegna er mikilvægt að skoða hvert verkefni sérstaklega.
Hjá Orkulandi aðstoðum við bændur og rekstraraðila við að meta:
- hvaða búnaður þarf að vera á varaafli
- hvaða álag er raunhæft að tryggja
- hversu lengi þarf varaaflið að endast
- hvernig best sé að tengja lausnina inn á núverandi kerfi
- hvernig forgangsraða megi mjaltakerfi, kæli, tölvum, fóðrun og öðrum lykilþáttum
Markmiðið er alltaf að finna lausn sem er bæði örugg, skynsamleg og sniðin að raunverulegum þörfum búsins.
Fjárfesting í öryggi og samfellu
Varaafl er ekki lúxus þegar um er að ræða nútímafjós. Það er hluti af ábyrgum og framsýnum rekstri. Með rétt hönnuðu varaaflskerfi er hægt að draga úr óvissu, bæta viðbragð við bilunum og vernda bæði búnað, framleiðslu og daglegan rekstur.
BLUETTI EP2000 er mikilvægur þáttur í því að gera fjósið betur í stakk búið fyrir óvæntar aðstæður, hvort sem um er að ræða stutt rafmagnsleysi, truflanir á dreifingu eða aukna þörf fyrir rekstraröryggi.
Við hjálpum þér að meta þarfirnar
Við hjá Orkulandi veitum ráðgjöf um varaaflslausnir fyrir fjós, mjaltakerfi og annan búrekstur. Við skoðum aðstæður á staðnum, metum hvaða kerfi skipta mestu máli og leggjum til lausn sem hentar rekstrinum.
Hafðu samband og fáðu faglegt mat á því hvernig BLUETTI EP2000 varaaflskerfi getur stutt við mjaltakerfi, kæla, tölvukerfi, fæðusnigla, loftpressur og annan mikilvægan búnað í þínu fjósi.


