Bluetti APEX300 – frelsi til að ferðast án takmarkana

APEX300 er hannaður með einfaldleika og kraft í huga.

Með Bluetti APEX300 breytist ferðabíllinn þinn eða hljólhýsið í sjálfstæða stækkanlega orkustöð. Hvort sem verið er að ferðast í stutta helgarferð eða í langt ferðaævintýri fjarri að gangi að rafmagni, þá veitir APEX300 öruggt og áreiðanlegt rafmagn – hvar sem er.

Tengdu, kveiktu og farðu.

Engin flókin uppsetning, engar áhyggjur af hávaða eða bensíni. APEX300 keyrir kæli- og eldunartæki, kaffivél, hleður rafhjól, síma og tölvur – jafnvel hitabúnað – án þess að fórna ró, öryggi eða þægindum.

Öryggi er í forgrunni.

Endingargóðar LiFePO₄ rafhlöður, stöðugt afl og snjöll stjórnun, tryggja að rafmagnið sé alltaf á þínum forsendum. Bara hrein og stöðug íslensk orka fyrir þig og fjölskylduna.

APEX300 gefur ykkur raunverulegt frelsi. Frelsi til að stoppa þar sem útsýnið er best. Frelsi til að vera lengur. Frelsi til að ferðast án þess að vera háð tenglum á tjaldstæðum.

APEX300 er ekki bara rafmagn - hann kemur með hugarró – og er frelsi á hjólum

APEX300 hentar sérstaklega fyrir;

Ferðabíla og hjólhýsi:
Tryggir rafmagn á öll tæki, jafnvel þau sem taka mikla orku eins og hitara.

Varaafl fyrir heimili:
Knýr orkufrek heimilistæki, tölvur, kæla og sjónvörp í rafmagnsleysi.

Vinnu utan rafkerfisins:
Sér verkfærum og tækjum vísindamannan fyrir rafmagni.

Helstu eiginleikar

Rafhlaða:
2. kynslóð Lithíum LiFePO₄ rafhlaða í bílaiðnaðarflokki, 6000+ hleðslulotur (80% afkastageta), hönnuð til allt að 17+ ára notkunar.

Rafhlöðugeta:
2764,8 Wh (stækkanlegt upp í 58 kWh með viðbótarröðum).

Úttaksafl:
3840 W stöðugt afl, 7680 W hámarksálag, með 120 V / 240 V split-phase stuðningi fyrir orkufrek tæki eins og loftkælingar og hitara.

UPS (órofinn aflgjafi):
Samstundis skiptitími, 20 ms, fyrir truflunarlaust rafmagn við rafmagnsleysi.

Hleðsla:

220V, Bílarafmagn, Sólarorka.  Margir möguleikar, þar á meðal TurboBoost AC (allt að 3840 W), sólarorka (allt að 4 kW með Solar X), rafstöð, rafbílahleðslutæki og bílahleðsla.

Stækkanleiki:
Hægt að bæta við allt að 6 B300K rafhlöðum, sólarsellum eða DC rafmagnshnúti.

App-stýring:
Bluetooth / Wi-Fi app fyrir vöktun og stillingar.

Úttök:
4 x 220V tenglar, (þar á meðal 30A RV og 50A NEMA), auk þess að hægt er að fá Hub D1 fyrir DC-úttök (USB-A, USB-C).

Afkastahápunktar

Hraðhleðsla:
Getur náð 100% hleðslu á innan við 3 klukkustundum með Turbo AC hleðslu.

Mikil nýtni:
Hágæða rafrásahönnun sem tryggir hátt afl og góða orkunýtni.

Í pakkanum er

Apex 300 eining, AC rafmagnssnúra, 12 V bílsnúra og notendahandbók.