BLUETTI ES125 Varaafl og orkugeymslukerfi · 125 kW / 257 kWh

← Stórnotendur

 

Ég óska eftir frekari upplýsingum

BLUETTI ES125

BLUETTI ES125 er vökvakælt orkugeymslukerfi með 125 kW aflbreyti og 257 kWh LFP-rafhlöðum. Rafhlöður, aflbreytir (PCS), rafhlöðustýring (BMS) og orkustýring (EMS) eru samþætt í einn skáp. Kerfið er valkostur við hönnun varaafls, álagstoppajöfnunar og geymslu eigin sólarorkuframleiðslu. PV- og STS-einingar eru tilgreindar sem valbúnaður í tæknibæklingi.

Notkun í verkefnum

  • Varaafl fyrir skilgreindan hluta framleiðslu, búrekstrar eða reksturs atvinnuhúsnæðis.
  • Stýring á aflúttekt frá dreifikerfi þegar aflþörf er breytileg.
  • Samþætting við sólarsellur og orkustýringu byggingar eða starfsemi.

Tækniupplýsingar

Eftirfarandi eru uppgefin framleiðandagögn til frumvals.

Stærð eða eiginleiki Uppgefin gögn framleiðanda
Nafnafl / uppgefin orkurýmd 125 kW / 257 kWh
Rafhlöðutækni LiFePO₄ (LFP)
Spennusvið rafhlöðu 716,8-921,6 V DC
Hámarks hleðslu- og afhleðslustraumur 157 A, háð stýringu BMS
AC-tenging 400 V, 3W+N+PE / 3W+PE, 50/60 Hz
Nafnstraumur / hámarksstraumur AC 180 A / 200 A
Hámarksafl AC 137,5 kW
Heildarbjögun straums (THDi) < 2% við nafnafl
PV-valbúnaður Nafnafl 126 kW; hámarksafl 140 kW; vinnuspenna 394-686,8 V DC; hámarksspenna 900 V DC; MPPT/strengir: 2/2; hámarksstraumur 160 A × 2
Eyjarekstur með STS-valbúnaði 125 kW; THDu < 3% við línulegt álag; yfirfærsla < 20 ms
Samhliða rekstur Allt að 2 einingar í eyjarekstri / 8 nettengdar
Kæling / uppgefinn hlífðarflokkur Vökvakæling; IP67 rafhlöðuhólf / IP55 rafbúnaðarhólf
Mál, B × D × H 1.820 × 1.120 × 1.940 mm
Þyngd Um 3.000 kg

Forsendur hönnunar

Val á kerfi byggist á mældum álagsferli, ræsi- og skammtímaálagi, fasaálagi, aflstuðli og kröfum um varaaflstíma. Reikna þarf nýtanlega orku með hliðsjón af hleðslustöðu, leyfilegri afhleðsludýpt, hitastigi, eigin notkun kerfisins, töpum og öldrun rafhlaðna. Tilgreind orkurýmd er því ekki tryggður orkuforði við riðstraumsúttak.

Í hönnun þarf að skilgreina tengipunkt, netvernd, jarðtengingu og meðferð núllleiðara, skammhlaupsframlag, samhæfingu varna og stýringu við bilun. Uppsetning krefst einnig mats á brunavörnum, burðarþoli undirstöðu, aðkomu og þjónusturými. Fyrir íslenskan uppsetningarstað þarf að staðfesta rekstur í kulda, hitun, rakaþéttingu og tæringarálag. Endanleg kerfissamsetning og tengiskilyrði eru staðfest fyrir hvert verkefni.

Heimildir og tæknigögn

Heimildir yfirfarnar 8. nóvember 2026. Vörumynd er frá C&I-yfirliti BLUETTI.

Fáðu tæknilegt mat á verkefninu hjá Orkulandi. Sendu upplýsingar um álag, tengipunkt, fyrirhugaðan rekstrarham og varaaflsþörf.

Ég óska eftir frekari upplýsingum

Til baka í Stórnotendur