Spurningar og svör fyrir RV5 ferðabílarafkerfi
Sp. 1: Hversu mikið „plug-and-play“ er RV5 kerfið? Þarf ég rafvirkja til að setja það upp?
Svar: RV5 er hannað fyrir hraða og einfalda uppsetningu sem hentar "byrjendum". Með fyrirfram merktum tengingum og einfaldari hönnun geta flestir húsbílaeigendur sett kerfið upp með grunnfærni án þess að þurfa rafvirkja.
Sp. 2: Hvaða verkfæri þarf til uppsetningar?
Svar: Til að ljúka hefðbundinni uppsetningu þarftu skiptilykil, stjörnuskrúfjárn, víraklippur, borvél, fastlykil, hlífðarhanska, mæli og sílikonlímbasað lím.
Sp. 3: Hvaða fylgihlutir fylgja RV5? Þarf ég að kaupa eitthvað aukalega?
Svar: RV5 kerfið inniheldur alla nauðsynlega kapla, DC öryggi og rofa fyrir helstu einingar kerfisins. Hins vegar þarftu sjálfur að útvega AC öryggisrofa fyrir Epanel, miðað við landtengingu húsbílsins og AC tækin sem þú ætlar að nota.
Sp. 4: Get ég samþætt RV5 kerfið við núverandi raflagnir og öryggjatöflu í húsbílnum mínum?
Svar: Já.
Sp. 5: Hvernig vinnur RV5 kerfið með 12V kerfinu mínu?
Svar: RV5 er í grunninn 48V kerfi og þarf því 48V rafhlöðubanka til að virka. Til að samþætting við húsbílinn verði hnökralaus er það með sérstakt DC úttak sem hægt er að stilla annaðhvort á 12V eða 24V. Þú getur tengt þetta úttak beint við núverandi 12V álagsrásir eða DC dreifitöflu til að knýja hefðbundinn rafbúnað í ökutækinu.
Sp. 6: Get ég notað sólarsellur frá öðrum framleiðendum með RV5 kerfinu?
Svar: Já, RV5 er samhæft við sólarsellur frá öðrum framleiðendum og býður þannig upp á sveigjanlega orkukosti fyrir húsbílinn þinn.
Sp. 7: Get ég notað blýsýru- eða AGM rafhlöður með RV5?
Svar: Já, RV5 virkar með blýsýru- og AGM rafhlöðum. Hins vegar getur notkun rafhlaðna sem eru ekki frá BLUETTI valdið ójafnari orkudreifingu og hraðari orkunotkun.
Sp. 8: Hvernig hleð ég RV5 frá bílnum á meðan ég er að keyra?
Svar: RV5 tengist startrafhlöðu ökutækisins með sérstökum köplum og öryggisrofa, sem gerir kleift að hlaða kerfið beint frá alternatornum.
Sp. 9: Hvernig tengi ég sólarsellur við RV5 kerfið?
Svar: Tengdu sólarsellurnar beint við PV-inntak RV5 Power Hub. Til að einfalda uppsetningu skaltu fylgja ítarlegri tengimynd í leiðbeiningum / Quick Start Guide.
Sp. 10: Hvernig veit ég hvort kerfið passi í geymsluhólfið í húsbílnum mínum?
Svar: RV5 Power Hub er 450 × 500 × 160 mm að stærð. Auk stærðar einingarinnar þarftu að tryggja nægt rými fyrir loftræstingu. Lágmarks bil upp á 200 mm þarf á öllum hliðum — ofan, neðan, til vinstri og hægri. Mældu því plássið sem þú hefur til ráðstöfunar til að staðfesta að það uppfylli þessar heildarkröfur.
Sp. 11: Er hægt að setja B4810 rafhlöðuna lóðrétt upp við hliðina á RV5 Power Hub?
Svar: Já, hægt er að festa B4810 rafhlöðuna lóðrétt til að spara pláss, svo framarlega sem hún er tryggilega fest.
Sp. 12: Þarf ég að stilla kerfið eftir uppsetningu?
Svar: Nei, RV5 kerfið greinir sjálfkrafa tengda hluti og stillir sig sjálft. Engar handvirkar stillingar eru nauðsynlegar.
Sp. 13: Þarf ég að stilla margar rafhlöður handvirkt?
Svar: Ef þú notar BLUETTI rafhlöður er engin handvirk stilling nauðsynleg. Fyrir litíumrafhlöður eða blýsýrurafhlöður frá öðrum framleiðendum gæti þurft handvirkar stillingar.
Sp. 14: Hvernig leysi ég rafmagnsvandamál í RV5 kerfinu?
Svar: Epad býður upp á Ai-knúna greiningu til að finna bilanir. BLUETTI appið gerir þér einnig kleift að fylgjast með kerfinu og bilanagreina í rauntíma.
Sp. 15: Hversu margar B4810 rafhlöður þarf ég til að keyra t.d. hitakerfi yfir nótt?
Svar: Þó ein 5 kWh B4810 rafhlaða gæti haft næga orku til að keyra hitakerfi í nokkrar klukkustundir, er stærsta áskorunin það afl sem þarf við ræsingu. Uppsetning með einni rafhlöðu er takmörkuð við 4.320W. Til að tryggja áreiðanlega virkni mælum við með tveimur B4810 rafhlöðum. Það veitir nægt afl við ræsingu og næga orku (10 kWh) til að keyra hitakerfi yfir nótt.
Sp. 16: Hversu langan tíma tekur að endurhlaða rafhlöðurnar?
Svar: Hleðslutíminn er sveigjanlegur og fer eftir orkugjafa. Með einni 5,1 kWh B4810 rafhlöðu tekur full hleðsla (0–100%) með 3.600W landtengingu um það bil 1,6 klukkustundir. Ef þú þarft enn hraðari hleðslu getur kerfið sameinað landtengingu og sólarorku, sem getur stytt tímann niður í aðeins 1,1 klukkustund. Einnig er hægt að hlaða með alternator ökutækisins eða eingöngu með sólarsellum, sem gefur mikinn sveigjanleika á ferðinni.
Sp. 17: Styður RV5 sjálfvirka ræsingu/slökkvun á rafstöð?
Svar: Já, Epad er með tengi (Generator Start Signal) sem styður sjálfvirka ræsingu og slökkvun á rafstöð.
Sp. 18: Hvað er UPS (órofa aflgjafi) og hvers vegna skiptir það máli í raforkukerfi húsbíls?
Svar: UPS virkni RV5 skiptir sjálfkrafa yfir á rafhlöðuafl innan 20 ms ef landtenging eða rafstöð dettur út, þannig að tækin þín halda áfram að virka án truflana.
Sp. 19: Af hverju ætti ég að velja 48 V rafhlöðukerfi fyrir húsbílinn minn?
Svar: 48V kerfi er skilvirkara, með allt að 30% minni orkutapi samanborið við 12V kerfi. Það styður einnig grennri kapla og öruggari rekstur.
Sp. 20: Get ég byrjað með eina B4810 rafhlöðu og bætt fleirum við síðar?
Svar: Já, RV5 er einingakerfi sem auðvelt er að stækka. Þú getur bætt við allt að 24 B4810 rafhlöðum og náð samtals 122 kWh geymslugetu.
Sp. 21: Hversu mikið afl frá landtengingu ræður RV5 við?
Svar: RV5 styður allt að 6.000 W álag í gegnum 50A bypass þegar kerfið er tengt við landtengingu.
Sp. 22: Mun RV5 tæma startrafhlöðu ökutækisins?
Svar: RV5 hættir sjálfkrafa að taka afl frá startrafhlöðu ökutækisins þegar slökkt er á vélinni og kemur þannig í veg fyrir að rafhlaðan tæmist.
Sp. 23: Hver er kosturinn við Epad snertiskjáinn miðað við að nota bara farsímaappið?
Svar: Epad er miðlæga stjórnstöðin þín og býður upp á ítarlegri greiningu, Ai-knúna innsýn og stjórnun. Hann tengir einnig búnað frá þriðju aðilum fyrir heildstæða samþættingu kerfisins.
Sp. 24: Getur BLUETTI appið stjórnað einstökum rafrásum í húsbílnum mínum í gegnum Epanel?
Svar: Já, appið gerir þér kleift að fylgjast með og stjórna allt að fjórum AC rásum og sex DC rásum úr fjarlægð, sem gefur þér fulla yfirsýn yfir raforkukerfi húsbílsins.
Sp. 25: Mun RV5 hafa áhrif á þyngd eða jafnvægi húsbílsins míns?
Svar: RV5 Power Hub vegur 314 kg og B4810 rafhlaðan vegur 47 kg. Hafðu þyngd og jafnvægi húsbílsins í huga þegar þú velur staðsetningu fyrir uppsetningu.
Sp. 26: Hvaða öryggisvottanir hefur RV5 kerfið?
Svar: RV5 Power Hub er FCC, CE, ROHS vottað og uppfyllir strangar Evrópskar öryggiskröfur fyrir færanleg raforkukerfi.
Sp. 27: Hvernig get ég komið í veg fyrir ofmikla afhleðslu rafhlöðunnar?
Svar: Bluetti B4810 rafhlaðan er með snjallt Battery Management System (BMS) sem ver gegn ofmikilli afhleðslu, ofhleðslu og öðrum mögulegum vandamálum.
Sp. 28: Hvers konar ábyrgð og þjónusta fylgir RV5?
Svar: RV5 kemur með 5 ára ábyrgð og sérhæfð tækniaðstoð er í boði.
Sp. 29: Get ég notað RV5 fyrir off-grid búsetu eða sem varaafl fyrir heimili?
Svar: Já, RV5 er fjölhæf lausn sem hentar mjög vel fyrir sumarbústaði, húsbíla og varaafl fyrir heimili.
Sp. 30: Hvað kostar RV5 kerfi?
Svar: Verð á kerfi með einum B4810 neyslugeymi er frá kr. 639.000 án uppsetningar.
