Markaðsverð á lithíum hefur hækkað á ný á alþjóðamörkuðum eftir miklar sveiflur á síðustu misserum. Á fyrstu mánuðum ársins 2026 hefur verð á lithíumkarbónati hækkað verulega frá lægðum ársins 2025, þótt daglegar og vikulegar sveiflur séu enn talsverðar.

Á sama tíma bendir alþjóðleg greining til þess að eftirspurn eftir rafhlöðulausnum og orkugeymslu haldi áfram að aukast, sérstaklega vegna orkuskipta, rafvæðingar og aukinnar áherslu á varaafl og sjálfstæðari orkulausnir. 

Fyrir neytendur og fyrirtæki þýðir þetta einfaldlega að kostnaður við framleiðslu rafhlaðna og orkubanka getur og hefur hækkað. Þegar hráefnisverð hækkar hefur það óhjákvæmilega áhrif á innkaupsverð framleiðenda, sem getur síðan skilað sér út í markaðsverð á fullbúnum lausnum. Því miður má því búast við að verð á sumum orkubönkum hækki á meðan staðan á hráefnamarkaði er svona strembin.

Hjá Orkulandi leggjum við þó ríka áherslu á að bregðast við af ábyrgð. Við leitum stöðugt leiða til að halda álagningu í lágmarki, semja betur og tryggja viðskiptavinum okkar eins hagstæð verð og mögulegt er hverju sinni. Markmið okkar er skýrt: að bjóða áreiðanlegar orkulausnir á sanngjörnu verði, jafnvel þegar alþjóðlegir markaðir sveiflast hratt.

Viljir þú fá ráðgjöf um hagkvæmustu lausnina fyrir heimili, sumarhús, fyrirtæki eða varaafl, þá erum við tilbúin að aðstoða.  Ekki hika við að hafa samband við okkur í sala@orkuland.is