Sjö Bluetti varaorkukerfi í einbýlis- og gestahúsi

Í stórri og metnaðarfullri framkvæmd á Vesturlandi var ráðist í að hanna heildstæða varaaflslausn fyrir stórt einbýlishús ásamt gestahúsi. Lausnin sem varð fyrir valinu var frá Bluetti, og Orkulandi, enda var meginmarkmiðið skýrt: að tryggja að íbúar og gestir yrðu aldrei rafmagnslausir, jafnvel þótt alvarlegar truflanir yrðu á dreifikerfinu.

Í verkefninu var lögð sérstök áhersla á að forgangstæki og mikilvægur búnaður hefðu stöðugt rafmagn. Þar má nefna vatns- og hitadælur, fjarskipti, kælar, frystar og annan búnað sem skiptir sköpum fyrir öryggi, þægindi og daglegan rekstur húsanna.

Raflagna-verkfræðingar á Ferli verkfræðistofu, komu að hönnun kerfanna í nánu samstarfi við Bluetti, þar sem valið stóð milli Bluetti EP600 og EP2000 kerfa, eftir þörfum hverrar rafmagnstöflu.

Trygging við rafmagnsleysi

Alls voru sett upp sjö Bluetti-kerfi í húsunum, eitt til tvö kerfi við hverja töflu. Þessi uppsetning tryggir dreifða og örugga rafmagnslausn sem eykur bæði rekstraröryggi og sveigjanleika kerfisins í heild. Mikilvægur kostur Bluetti er að kerfin tryggja órofa rafmagn.

Ef rafmagn fer af tekur Bluetti-kerfið við á um það bil 10 millisekúndum, sem er nánast samstundis. Þetta er mikill munur miðað við hefðbundnar dísel rafstöðvar, sem geta tekið allt að mínútu að fara í gang og koma rafmagni á aftur, oftar en ekki fyrir viðkvæmar tölvur, sem þola illa flökkt á rafmagni.

Bluetti varaorkukerfið er tilbúið fyrir framtíðina og sólina

Bluetti er því frábær kostur fyrir þá sem vilja hámarks rekstraröryggi og áreiðanleika – og ekki síst fyrir þá sem vilja forðast myrkur, kulda og óþægindi í vondum veðrum þegar rafmagnið bregst.

það þarf ekki að minnast á það, en öll Bluetti kerfi eru hönnuð og framleidd með það í huga að geta tekið á móti orku frá sólarsellum, án þess að nokkurn viðbótarbúnað vanti.

Við óskum eigendum þessa glæsilega húss til hamingju með metnaðarfullu framkvæmd og erum þakklát og stolt að hafa verið valin til þessa mikilvæga verkefnis.