Íslensk veðrátta er óútreiknanleg, eins og nýleg eldingaveður hafa minnt okkur á. Þegar náttúruöflin láta að sér kveða er rafmagnsleysi raunveruleg ógn sem getur dunið yfir fyrirvaralaust. Fyrir vikið standa heimili í myrkri, fyrirtæki lamast og bændur glíma við krefjandi áskoranir við að halda mjaltakerfum gangandi.

Í nútímasamfélagi er rafmagn ekki lengur munaður – það er nauðsyn. En hvernig tryggjum við öryggi okkar þegar rafdreifing bregst?

Af hverju skiptir varaafl máli?

Rafmagnsleysi er meira en bara óþægindi. Það getur haft alvarlegar afleiðingar:

  • Matvælaöryggi: Kæliskápar og frystar hætta að virka, sem getur leitt til skemmda á matvælum.

  • Samskipti: Netbeinar (routers) og símar verða rafmagnslausir, sem skerðir aðgang að mikilvægum upplýsingum.

  • Atvinnustarfsemi: Fyrir bændur og fyrirtæki getur stutt stopp þýtt mikið fjárhagslegt tjón ef tæki eins og mjalta- eða tölvukerfi fara út.

Bluetti: Aflið sem þú getur treyst á

Bluetti vararafkerfi hafa slegið í gegn um allan heim fyrir áreiðanleika og hönnun. Ólíkt gömlum olíurafstöðvum eru Bluetti stöðvarnar (eins og hinir öflugu orkubankar Elite300,  APEX300 og EP2000 fyrir stærri kerfi eins og fyrirtæki, fjós og hótel.) hljóðlausar, viðhaldslausar, lyktarlausar og algerlega öruggar til notkunar innandyra.

Hvað gerir Bluetti að rétta valinu?

  1. Sjálfvirk vörn (UPS): Mörg Bluetti stöðvar geta tekið við á örskotstundu ef rafmagnið fer, þannig að tækin þín slökkva ekki einu sinni á sér.

  2. Sveigjanleiki: Þú getur tengt allt frá snjallsímum og kaffivélum yfir í stærri heimilistæki og verkfæri.

  3. Græn orka: Hægt er að hlaða stöðvarnar með sólarsellum, sem gerir þig algjörlega sjálfbæran ef rafmagnsleysið dregst á langinn.

Bændur hafa valið Bluetti varaaflskerfi

Bluetti varaaflskerfi eru nú þegar tengd við mjaltaþjóna víða um land.  Reynslan hefur verið frábær og eru þeir bændur sem hafa tekið kerfið í notkun, eru ánægðir með reynsluna.  EP2000 kerfin eru fyrir stærri notendur og þau vakta vel reksturinn og grípa inn í við minnsta flökt og eru fullkomin lausn þegar kemur að varaafli fyrir bændur í mjólkurframleiðsliu.

Hægt er að sjá frétt um EP2000 kerfið sem hentar fyrirtækjum og bændum hér, hér og hér.

Ekki bíða eftir næsta stormi

Eldingarnar á annan í páskum þetta árið voru áminning. Besti tíminn til að undirbúa sig er áður en næsta veður skellur á. Með Bluetti varaaflstöð eða orkubanka ertu ekki bara að kaupa batterí – þú ert að kaupa hugarró fyrir þig og þína fjölskyldu.

Hafðu samband við Orkuland.is eða hringdu í okkur í 680 6000 og fáðu verðtilboð og nánaru upplýsingar möguleika Bluetti orkubanka og varaaflskerfi.

Vertu viðbúinn. Vertu með Bluetti.